flugfréttir
Honeywell og Lufthansa Technik í samstarf vegna viðhalds á A350
Honeywell hefur gert Lufthansa Technik að löggildum viðgerðaraðila fyrir íhluti og tækjabúnað sem fyrirtækið framleiðir
Bandaríska tæknifyrirtækið Honeywell og Lufthansa Technik ætla í samstarf og koma á fót stærsta viðgerðar- og viðhaldsverkefni í heimi fyrir Airbus A350 þoturnar.
Í tilkynningu kemur fram að með þessu samstarfi munu
viðskiptavinir og þau flugfélög sem hafa þessa nýju breiðþotu í flotanum fá aðgang að
tæknivæddustu og bestu viðhaldsþjónustunni fyrir A350.
Honeywell hefur gert Lufthansa Technik að löggildum viðgerðaraðila fyrir íhluti og tækjabúnað
sem fyrirtækið framleiðir og þar á meðal fyrir vararaflstöð (APU) sem er framleidd af Honeywell.
Með þessu geta flugfélög pantað viðgerð og viðhald með „einu símtali“ í
Aircraft on Ground (AOG) aðstæðum í þjónustuleið Honeywell sem fer fram á vegum Lufthansa Technik sem
einnig getur séð um skoðun á hverju sem er þegar kemur að Airbus A350 frá nefi aftur í stél.
Með samstarfinu er hægt að samhæfa og einfalda viðhaldsþjónustu er kemur að Airbus A350
og bjóða viðskiptavinum upp á skjótari þjónustu með þeim ávinningi að vélin kemst
eins fljótt aftur í loftið og hægt er.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.