flugfréttir
Mikil ásókn í atvinnuflugmannsnám Keilis
Nemendur í atvinnuflugmannsnámið hjá Keili
Mikil ásókn hefur verið í atvinnuflugmannsnám hjá Flugakademíu Keilis en fullmannað fer að verða í þá bekki sem hefjast í byrjun ársins 2018 hjá skólanum.
Enn er verið að vinna úr umsóknum fyrir janúar 2018 en hátt í sextíu umsóknir hafa nú þegar borist rúmum tveimur mánuðum fyrir upphaf skólaársins.
Aðeins er tekið við 28 nýnemum hverju sinni og eru umsóknir metnar um leið og þær berast.
Í ljósi mikils fjölda umsókna í flugnám hjá Flugakademíu Keilis verður umsóknarferli skólans breytt á næsta ári og þurfa þá umsóknir að hafa borist að minnsta kosti tveimur mánuðum fyrir upphaf námsins.
Næstu námskeið í atvinnuflugmannsnámi hefjast í janúar, maí og ágúst 2018 en í tilkynningu
frá Keili kemur fram að áhugasamir eru hvattir til að sækja um sem fyrst þar sem námskeiðin fyllast fljótt.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.