flugfréttir
AirBaltic stefnir á að vera bara með CSeries-þotur
Ein af CS300 þotum airBaltic á Dubai Air Show flugsýningunni
Lattneska flugfélagið airBaltic segist stefna að því að vera eingöngu með CSeries-þotur í flotanum á næstu árum en félagið hefur nú eina af CS300 þotum sínum til sýnis á Dubai Air Show flugsýningunni.
Að undanskildum CS300 þotunum þá samastendur flugfloti airBaltic af flugvélum af gerðinni Boeing 737-300, Boeing 737-500 og Bombardier Dash 8 Q400.
Martin Gauss, framkvæmdarstjóri airBaltic, segir að Boeing 737 þotunum verði skipt út fyrir CS300
og stendur til að panta allt að 14 slíkar þotur til viðbótar.
Þá kemur einnig til greina að skipta Bombardier Q400 vélunum út fyrir CSeries-vélarnar þar sem
leigusamningur á þeim fer að renna út og nefnir Gauss að skrúfuvélarnar séu óhentugar í flug á lengri flugleiðum.
„Q400 eru góðar flugvélar til síns brúks en þær henta ekki á lengri leiðum. Það myndast biðraðir
við klósettinn í gegnum Business Class farrýmið sem er ekki sniðugt fyrir farþega“, segir Gauss.
AirBaltic hóf flug til Dubai frá Riga fyrir tveimur vikum síðan með CS300 þotunni og hefur vélin
verið að standa sig vel á þeirri flugleið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.