flugfréttir

Risaþotan sem flaug fyrsta áætlunarflugið komin í geymslu

- Óvíst hver örlög 9V-SKA verða

14. nóvember 2017

|

Frétt skrifuð kl. 14:52

9V-SKA í lendingu á Tarbes-flugvellinum í gær nálægt Pýrenes-fjöllunum

Fyrsta Airbus A380 risaþota heims til að hefja farþegaflug hefur verið ferjuð í geymslu eftir aðeins 10 ár í farþegaflugi.

Risaþotan, sem bar skráninguna 9V-SKA, flaug sitt fyrsta áætlunarflug á vegum Singapore Airlines fyrir 10 árum síðan en vélin var afhent félaginu árið 2007.

Risaþotunni var í gær flogið frá Changi-flugvellinum í Singapore til Tarbes-flugvallarins í suðurhluta Frakklands.

Vélinni verður skilað til eiganda sem er flugvélaleigan Dr. Peters Leasing í Þýskalandi en ekki er vitað hver örlög risaþotunnar verður.

Hreyflarnir verða fjarlægðir og þeim skilað til Rolls-Royce

Hreyflarnir verða fjarlægðir undan vængjum risaþotunnar og þeim skilað aftur til Rolls-Royce Holdings en á meðan mun Dr. Peters Leasing reyna að finna leigjanda fyrir þotuna sem verður hægara sagt en gert.

Dr. Peters Leasing fékk 174 milljónir króna á mánuði fyrir leigu á risaþotunni frá Singapore Airlines en flugvélaleigan á fjórar A380 risaþotur.

9V-SKA var máluð hvít áður en henni var skilað eftir að hafa verið í litum Singapore Airlines í 10 ár

Singapore Airlines mun skila þremur A380 risaþotum til baka til fyrirtæksins í janúar, apríl og í júní árið 2018 á meðan þeirri fjórðu verður skilað til flugvélaleigunnar Doric í mars.

Verður erfitt að koma vélinni aftur í útleigu

Airbus hefur átt í erfiðleikum með að fá fleiri pantanir í Airbus A380 og á sama tíma virðist sem svo að enginn markaður sé fyrir notaðar risaþotur.

9V-SKA er þriðja risaþotan sem var smíðuð og flaug hún fyrsta áætlunarflugið frá Singapore til Sydney þann 25. október árið 2007 en seinasta farþegaflug vélarinnar var flogið frá London til Singapore þann 10. júní í sumar.

9V-SKA í litum Singapore Airlines

Eins og fyrr kom fram þá var 9V-SKA flogið í gær til Tarbes-Lourdes-Pyreenees flugvallarins sem er staðsettur í 120 kílómetra fjarlægð, suðvestur af Toulouse, þar sem þotan var smíðuð.

Flugvöllurinn er mikið notaður sem geymsla fyrir stórar þotur en fyrirtækið Tarmac Aerosave er stærsta flugvélageymslufyrirtæki í Evrópu og er pláss fyrir 25 þotur í Tarbes og hundruði þotna á flugvellinum í Teruel á Spáni.

Vélin var máluð hvít áður en henni var skilað og þá var séð til þess að hún væri í sama ástandi og þegar Singapore Airlines tók við vélinni sem þýðir að innréttingar séu í góðu standi, og íhlutir í vélinni sem og í hreyflum verða að vera nýir eða nýlegir en að öðru leyti á félagið von á sekt upp á 2 milljarða króna.

Dr. Peters Leasing segir að það gæti komið til þess að 9V-SKA verði rifin niður í varahluti en þeir varahlutir sem hægt er að nýta úr hverri Airbus A380 eru metnir á 10 milljarða króna.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga