flugfréttir

American Airlines mun fljúga til Íslands

- Flogið verður til Keflavíkurflugvallar frá Dallas/Fort Worth

14. nóvember 2017

|

Frétt skrifuð kl. 19:07

Flugfloti American Airlines á Dallas/Fort Worth flugvellinum

Stærsta flugfélag Bandaríkjanna og það stærsta í Ameríku, American Airlines. hefur tilkynnt að félagið ætli að hefja flug til Íslands á næsta ári.

Með þessu munu þá allir risarnir þrír af bandarísku flugfélögunum fljúga til Íslands en Delta var fyrst þeirra og hóf félagið flug hingað árið 2011.

Tveir mánuðir eru síðan að United Airlines tilkynnti um að komu sína til landsins en það félag mun fljúga hingað frá Newark-Liberty flugvellinum í Bandaríkjunum og verður fyrsta flugið flogið hingað þann 23. maí 2018.

American Airlines ætlar að fljúga til Keflavíkurflugvallar frá Dallas/Fort Worth í Texas í samkepnni við Icelandair og WOW air sem bæði munu byrja að fljúga til Dallas í maí á næsta ári.

Ísland varð fyrir valinu vegna vinsælda landsins

Vasu Raja, varaforstjóri American Airlines, segir að félagið hafi ákveðið að hefja flug til Íslands vegna vinsælda landsins meðal Bandaríkjamanna.

American Airlines mun fljúga til Íslands með Boeing 757-200 þotum

American Airlines mun hefja Íslandsflugið þann 7. júní og verður flogið með farþegaþotum af gerðinni Boeing 757-200.

Brottför frá Dallas verður klukkan 20:20 að staðartíma og lent í Keflavík klukkan 9:15 að morgni til. Brottför frá Keflavík er klukkan 11:10 og lent aftur í Dallas klukkan 14:50 að staðartíma.

Opnað verður fyrir bókanir með American Airlines til Dallas þann 20. nóvember en flogið verður frá 7. júní fram til 27. október.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga