flugfréttir
Flugfreyja féll niður á flughlað í Kína úr Boeing 737 þotu
- Annað atvikið á tæpum þremur vikum í Kína
Skjáskot úr myndbandinu sem náðist á öryggismyndavél á flugvellinum
Flugfreyja slasaðist er hún féll niður á flughlað frá borði úr Boeing 737 þotu kínverska flugfélagsins Xiamen Airlines á flugvellinum í borginni Zhengzhou í Kína sl. föstudag.
Slysið átti sér stað er verið var að koma fyrir varningi um borð í vélina og var flugfreyjan að ganga
upp stiga þegar hún fell niður um rifu milli stigabílsins og útgang vélarinnar.
Myndbandi úr öryggisvél hefur verið dreift víða á Netinu sem sýnir er flugfreyjan
féll niður en hún brákaðist á rifbeini.
Verið var að undirbúa vélina fyrir brottför til borgarinnar Fuzhou þann 10. nóvember þegar atvikið
gerðist.
Flugfreyjan var flutt á sjúkrahús þar sem hún gekkst undir aðgerð en talið er að hún muni útskrifast
á næstu dögum.
Þetta er í annað skiptið á þremur vikum sem að flugfreyja fellur frá borði úr flugvél í Kína
en þann 23. október féll flugfreyja niður á flughlað úr Boeing 737-800 þotu frá kínverska
flugfélaginu China Eastern Airlines í flugvellinum í Shenzhen.
Myndband:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.