flugfréttir
Faldi sig inn á flugvélaklósetti eftir að hafa misst af öðru flugi
- Missti af flugi til Genf og laumaði sér inn í næstu vél til Genf síðar um daginn
Vélin var á leið til Genfar þann 12. nóvember þegar í ljós kom að einn fareginn um borð var ekki á farþegalista
Öryggisatvik kom upp á Gatwick-flugvellinum í Lundúnum sl. helgi þegar upp komst um farþega sem hafði náð að lauma sér um borð í þotu frá easyJet, sem hann átti ekki bókað flug með, og falið sig á salerni vélarinnar.
Farþeginn hafði gleymt hvað tímanum leið í biðsal flugvallarins og missti af fluginu
sínu til Genf í Sviss.
Í stað þess að hafa samband við flugfélagið og athuga önnur úrræði ákvað hann að smygla sér
um borð í annað flug með easyJet til Genfar, síðar um daginn.
Farþeginn, sem er 25 ára gamall karlmaður, náði að fara óséður um borð á gamla brottfararspjaldinu en þegar
hann komst að því að ekkert sæti var laust ákvað hann að læsa sig inni á klósetti
og vonast til þess að enginn myndi taka eftir því.
Maðurinn vildi ekki koma út af salerninu og þurfti því að kalla til lögreglu
Flugfreyja um borð tók þó eftir að merkingin á salerninu gaf til kynna að það væri upptekið
og bankaði hún á dyrnar þar sem allir farþegar eiga að vera í sætum sínum fyrir brottför
og með sætisólar spenntar.
Farþeginn neitaði að koma út af salerninu og þar af leiðandi var óskað eftir aðstöð lögreglu um borð í vélina.
Einhverjir farþegar óttuðust að atvikið tengdist hryðjuverki og voru margir smeikir
um að fara með vélinni en héldu ró sinni eftir að lögregla kom um borð og í ljós
kom hvers eðlis málið var.
Um 40 mínútur tók að tala manninn til og ná honum út af salerninu og var hann handtekinn
en sleppt án ákæru síðar um daginn.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.