flugfréttir
Embraer í viðræðum við flugfélög í Miðausturlöndum
John Slattery, framkvæmdarstjóri Embraer
Brasilíski flugvélaframleiðandinn Embraer er í viðræðum við nokkur flugfélög í Miðausturlöndum vegna pantanna á E-þotum sem félögin hafa áhuga á að nota í innanlandsflugi.
John Slattery, framkvæmdarstjóri Embraer, segir að viðræðurnar séu komnar
vel áleiðis og hafi nokkir flugfélög áhuga á að nota vélina til að fljúga farþegum
frá minni áfangastöðum í tengiflug til stærri flugvalla.
Slattery segir að þetta gæti bæði komið sér vel fyrir stór flugfélög og lágfargjaldaflugfélög
og með þotunum mætti bæta við tíðni sem væri óhagstætt með stærri vélum á borð
við Airbus A320neo eða Boeing 737 MAX.
Sú þota sem kemur til greina að selja flugfélögunum í Miðausturlöndum er
E2, nýja kynslóðin af Embraer-þotunum, sem kemur á markað í apríl á næsta
ári en norska flugfélagið Wideroe mun fá fyrsta eintakið afhent.
Slattery tók ekki fram hvaða flugfélög Embraer á í viðræðum við en meðal þeirra
flugfélaga sem hafa nú þegar Emiraer-þotur í flota sínum í Miðausturlöndum
er Royal Jordanian Airlines og EgyptAir.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.