flugfréttir
Norwegian fær leyfi fyrir 153 flugleiðum í Argentínu
- Norwegian Air Argentina mun hefja áætlunarflug á næsta ári
Norwegian Air Argentina mun hefja áætlunarflug á næsta ári
Norwegian hefur fengið grænt ljós frá argentínskum flugmálayfirvöldum til að hefja starfsemi dótturfélagsins, Norwegian Air Argentina, og stenfir félagið á að hefja áætlunarflug á næsta ári í Argentínu.
Norwegian Air Argentina hefur fengið leyfi fyrir 153 flugleiðum af þeim
156 leiðum sem sótt var leyfi fyrir en þremur flugleiðum var hafnað.
Norwegian stofnaði félagið í janúar og samþykkti stjórn félagsins stofnun
hiðs nýja félags í maí í vor og hefur verið unnið hörðum höndum að því síðan
að koma félaginu á fót.
Norwegian segir að til standi að félagið muni byrja með töluverðum umsvifum frá
fyrsta degi og verður bæði um að ræða innanlandsflug og millilandaflug
frá Argentínu til annarra landa.
Norwegian segir að mjög lítil samkeppni sé í farþegaflugi milli margra áfangastaða
í Suður-Ameríku sem skapi kjöraðstæður fyrir félagið til að ná forystu í álfunni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.