flugfréttir
Flugslys meðal heimasmíðaðra flugvéla nær sögulegu lágmarki
- Mun færri flugslys vestanhafs í heimasmíðuðum flokki flugvéla
Experimental Aircraft Association (EAA) hefur unnið hörðum höndum að því að auka öryggi í flugi heimasmíðaðra flugvéla
Flugslysum hefur fækkað verulega vestanhafs þar sem heimasmíðaðar flugvélar eiga í hlut en á fjórum árum hefur slysum fækkað um 47 prósent í þessum flokki.
Á 12 mánaðar tímabili frá 1. október 2016 til 1. október á þessu ári voru 27 banaslys í flugi
meðal heimasmíðaðra flugvéla samkvæmt tölfræði frá bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA)
en árið 2016 voru þau 33 talsins.
Árið 2014 voru 51 flugslys í þessum flokki þar sem einhver um borð lét lífið í slysinu og 40 slys
voru skráð árið 2015 og er því um að ræða 47% færri slys.
„Þetta er í sögulegu lágmarki og má þakka því að flugmenn hafa sameinast um það að einblína
á bættara öryggi“, segir Sean Elliot, varaformaður yfir öryggisdeild innan Experimental Aircraft Association (EAA) samtakanna.
Frá árinu 2014 höfðu flugslysum fækkað úr 51 niður í 27 á þessu ári
Elliot bendir á að banaslys í flugi meðal heimasmíðaðra flugvéla eru orðin sjaldgæfari
en slys meðal þeirra sem stunda skíðaíþróttir, snjóbretti og jaðaríþróttir.
Meiri líkur á að verða fyrir eldingu
Þá hefur tölfræðin verin borin saman við önnur atvik og er búið að sýna fram á að það séu
meiri líkur að láta lífið við að verða fyrir eldingu en í flugslysi í heimasmíðaðri flugvél.
EAA hefur að undanförnu unnið í nánu samstarfi við FAA og samgönguöryggisnefnd Bandaríkjanna (NTSB) með það að leiðarljósi að fækka flugslysum í þessum flokki.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.