flugfréttir
Ólíklegt að Brandenburg-flugvöllur opni fyrir árið 2021
- Stefnir í 10 ára seinkun á opnun BER - Vandamálin mun alvarlegri
Upphaflega stóð til að opna Brandenburg-flugvöllinn árið 2010
Svo gæti farið að Brandenburg-flugvöllurinn í Berlín muni ekki opna fyrr en eftir 4 ár eða árið 2021.
Í þýska dagblaðinu Der Tagesspiegel kemur fram að staðan á þeim atriðum sem
þarf að laga svo hægt sé að taka flugvöllinn í notkun sé mun alvarlegri en gert
var ráð fyrir.
Til stendur að tilkynna um stöðuna á Brandenburg-flugvellinum þann 15. desember næstkomandi
og tilkynna nýja opnunardagsetningu og höfðu margir bundið vonir við að flugvöllurinn
myndi loksins opna árið 2019 en eins og staðan er í dag þá virðist það mjög hæpið.
Ný stjórn flugvallarins hefur komist að því að skipulagið, sem fyrri stjórn skildi eftir sig, hafi
verið mjög ábótavant og sé því mun meiri vinna framundan en gert var ráð fyrir og
eru margir gallar sem þarfa að laga á flugstöðinni og þá sérstakleg er kemur að brunavörnum.
Galli í brunavörnum alvarlegasta vandamálið
Prófanir fóru nýlega fram á eldvarnarkerfi og brunakerfi í flugstöðinni og kom fjöldi
vandamála í ljós sem þarf að laga sem verður tímafrekt.
Brandenburg-flugvöllurinn í Berlín
Stærsta vandamálið verður að lagfæra reykrækstingarkerfi, sprinkler-vatnsúðunarkerfi og
brunahljóðkerfi og kerfi með viðvörunarljósum sem á að fara í gang ef eldur kemur upp.
Þá hefur verið fjölda sjálvirkra hurða í flugstöðinni á BER sem hafa ekki virkað með þeim
hætti að dyrnar opnast ekki þegar farþegi nálgast hurðina en í dag er búið að lagfæra 48 af þeim.
Átti upphaflega að opna árið 2010
Brandenburg-flugvöllurinn átti upphaflega að opna árið 2010 en sex sinnum var opnun
hans frestað og er talið óraunhæft að hann opni fyrir árið 2021.
Upphaflegur kostnaður við framkvæmdirnar á Brandenburg-flugvellinum árið 2006 voru 348
milljarðar króna en kostnaðurinn hefur í dag næstu þrefaldast og er séð fram á að framkvæmdirnar
muni nema 812 milljörðum króna þegar upp er staðið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.