flugfréttir
Færri farþegar um Tegel-flugvöll eftir gjaldþrot Air Berlin
Tegel-flugvellinum í Berlín þann 21. maí sl.
Gjaldþrot þýska flugfélagsins Air Berlin hefur haft töluverð áhrif á afkomu Tegel-flugvallarins í Berlín í haust en mun færri farþegar fara nú um völlinn eftir að félagið flaug sitt seinasta flug um völlinn og þá hefur flugtökum og lendingum fækkað.
11,9 prósent færri farþegar fóru um Tegel-flugvöll í október samanborið við októbermánuð árið 2016
en á sama tíma þá fjölgaði farþegum á Schönefeld-flugvellinum um 3,3 prósent.
24.195 flugtök og lendingar áttu sér stað á Tegel-flugvelli og Schönefeld-flugvelli í október
sem er 5,4% samdráttur frá því október árið 2016 en flugferðum um Schönefeld dróust saman
um 1.7 prósent á meðan 7.5% færri flugvélar fóru um Tegel-flugvöll.
Þrátt fyrir færri farþega og færri flugtök og lendingar þá er talið að farþegafjöldinn um Tegel-flugvöll
muni ná sér aftur á strik á næstunni þar sem önnur flugfélög munu fylla upp í skarðið og koma
aftur á farþegafjölgun á ný.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.