flugfréttir

Airbus A350-900ULR skrefi nær því að verða að veruleika

- Airbus í nánu samstarfi við flugrekstardeild Qantas um þróun vélarinnar

4. desember 2017

|

Frétt skrifuð kl. 08:11

Qantas hefur bæði skorað á Airbus og Boeing um að koma með farþegaþotu sem getur flogið beint flug frá Ástralíu til London og New York

Airbus A350-900ULR hefur komist einu skrefi nær því að verða að veruleika en Airbus hefur hafið náið samstarf við Qantas um þróun á þotunni.

Airbus kynnti A350-900ULR árið 2015 og verður vélin langdrægasta farþegaþota heims og er gert ráð fyrir að hún geti flogið 17.965 kílómetra í beinu flugi sem samsvarar flugþoli upp á 19 klukkustundir.

Airbus og Qantas hafa farið af stað með verkefnið „Project Sunrise“ en flugfélag ástralska ætlar sér að nota Airbus A350-900ULR í áætlunarflugi frá austurströnd Ástralíu til New York og London auk annarra áfangastaða.

Qantas hefur bæði skorað á Airbus og Boeing um að koma með farþegaþotu sem getur flogið beint flug frá Ástralíu til London og New York

Qantas hefur hingað til þurft að fljúga til London og annarra áfangastaða í Evrópu með viðkomu í Asíu

„Bæði Boeing 777 og Airbus A350 geta flogið þessar vegalengdir í dag. En við teljum að þær geti það ekki með hámarkshleðslu“, sagði Alan Joyce, framkvæmdarstjóri Qantas.

Mikil eftirvænting eftir beinu flugi frá Sydney til London

Sérstaklega er einblínt á að A350-900ULR hafi það sem til þarf til að fljúga beint flug frá Sydney til London sem ekki hefur verið gert hingað til en með því myndi félagið spara sér 3 klukkstunda viðkomu á leiðinni í Asíu.

Iain Grant, yfirmaður yfir sölusvæðisdeild Airbus sem sér um Kyrrahafssvæðið, segir að Airbus sé í samstarfi við tækniteymi og flugvirkja Qantas um tækniþróun vélarinnar.

Singapore Airlines mun hinsvegar fá fyrsta eintakið af Airbus A350-900ULR og ætlar félagið með því að hefja á ný flug milli Singapore og New York.

Gæti flogið tæplega 3.000 km lengri vegalengd en A350-900

Airbus hefur ekki gefið út ítarlegar tækniupplýsingar um Airbus A350-900ULR nema að vélin muni geta flogið allt að 17.965 kílómetra í beinu flugi með 165.000 lítra af eldsneyti í tönkunum en til samanburðar þá getur Airbus A350-900 flogið 15.000 kílómetra með 141.000 lítra.

Lengsta áætlunarflug heims sem flogið er í dag er flug Qatar Airways frá Doha til Auckland á Nýja-Sjálandi sem eru 14.534 kílómetrar en það flug er flogið með Boeing 777-200LR sem í dag er langdrægasta farþegaþota heims.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga