flugfréttir
Starfsmenn Cargolux fá bónusgreiðslu fyrir jól
Boeing 747 fraktþota Cargolux
Cargolux hefur greitt út árlegan bónus til starfsmanna sem nemur eingreiðslu upp 2.500 evrur sem samsvarar 306.000 krónum.
Er því um að ræða um 4 milljónir evra sem munu greiðast í jólabónus til starfsmanna
en 1.556 starfsmenn starfa hjá Carglolux samkvæmt vefsíðu flugfélagsins.
„Ég er viss um að þið öll hafið orðið vör við það álag sem hefur fylgt auknum rekstrarhraða
fyrirtækisins að undanförnu og erum við mjög þakklát fyrir þann dugnað sem þið hafið sýnt í
starfi“, skrifaði Richard Forson, framkvæmdarstjóri Cargolux, í skilaboðum sem hann sendi
til starfsmanna sinna.
Cargolux hefur ákveðið að greiða bónusinn fyrir jólin í stað þess að greiða hann með vorinu
eftir að uppgjör félagsins fyrir árið 2017 hefur verið birt en talið er að hagnaður Cargolux
á þessu ári verði um 9 milljarðar króna.
Cargolux stefnir á að ráða til sín allt að 60 nýja flugmenn árið 2018 og mögulega bæta við
sig tveimur júmbó-fraktþotum í flotann til að mæta aukinni eftirspurn og þykir líklegast
að um eina Boeing 747-8 og eina Boeing 747-400F fraktþotur verði að ræða sem verða báðar
notaðar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.