flugfréttir
Cargolux stefnir á fleiri júmbó-fraktþotur árið 2018
Boeing 747-8F fraktþota Cargolux
Cargolux íhugar að bæta við fleiri júmbó-fraktþotum í flotann sinn árið 2018 og koma notaðar flugvélar til greina, annaðhvort af gerðinni Boeing 747-400F eða Boeing 747-8F.
Ekki er búið að ákveða hversu margar flugvélar verða teknar inn í flotann en Cargolux
hefur í dag 23 Boeing 747 fraktþotur í notkun, fjórtán af gerðinni Boeing 747-8F og níu
Boeing 747-400F.
Richard Forson, framkvæmdarstjóri Cargolux, tekur fram að notaðar júmbó-þotur
komi sér mun betur fyrir félagið fjárhagslega en að leggja inn pöntun í nýjar þotur.
Með fleiri þotum þá þyrfti Cargolux einnig að taka inn allt að 60 nýja flugmenn á næsta ári
en að jafnaði hefur félagið verið að ráða um 40 nýja flugmenn árlega.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.