flugfréttir
Keilir bætir við fjórum nýjum kennsluflugvélum
Myndin er tekin af Baldri Sveinssyni af DA40 Tundra kennsluvélum Keilis haustið 2016
Vegna aukinna umsvifa hefur Flugakademía Keilis fest kaup á fjórum nýjum DA40 kennsluflugvélum sem munu bætast við flugflota skólans snemma á næsta ári.
Eftir kaupin hefur skólinn til umráða alls fjórtán flugvélar frá Diamond flugvélaframleiðandanum: átta DA40 fjögurra sæta vélar, fimm DA20 tveggja sæta vélar og eina tveggja hreyfja DA42 kennsluvél.
DA40 flugvélar Keilis eru með tæknivæddustu kennsluvélum á landinu, búnar fullkomnum blindflugsbúnaði, stórum tölvuskjám og nútíma flugmælitækjum.
Með komu nýju vélanna hefur skólinn yfir að ráða einn nýstárlegasta og yngsta flota kennsluvéla í Evrópu en fyrirhugað er að fyrstu tvær vélarnar verði afhentar í mars næstkomandi og þær seinni í lok maí.
Þá festi Flugakademían nýverið kaup á fullkomnum flughermi frá Diamond fyrir þjálfun á tveggja hreyfla DA42 flugvél skólans og bætist hann við núverandi Redbird hreyfanlegan flughermi skólans.
Nýi flughermirinn verður tekinn í notkun í janúar 2018 og mun auka verulega við þjálfunarmöguleika atvinnuflugnema við skólann.
Fullbókað í atvinnuflugmannsnám í vor
Nú eru á þriðja hundrað nemendur í atvinnuflugnámi í Flugakademíu Keilis en aukin ásókn hefur verið í námið á undanförnum misserum og er fullbókað í bæði samtvinnað og áfangaskipt atvinnuflugnám í janúar, auk þess sem fullmannað var í cadet nám Icelandair og Keilis sem hófst í nóvember.
Vegna mikillar aðsóknar í flugnám er áhugasömum bent á að senda inn námsumsókn sem fyrst en næstu lausu námskeið hefjast í maí á næsta ári.
Nánari upplýsingar um kennsluvélar Flugakademíunnar má nálgast á heimasíðu Keilis: www.keilir.net/flugakademia/um-flugakademiuna/flugfloti
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.