flugfréttir

Fór í aðflug að rangri flugbraut á JFK-flugvelli í New York

- Önnur farþegaþota var á þeirri braut að hefja flugtak

6. desember 2017

|

Frétt skrifuð kl. 12:14

Frá Kennedy-flugvellinum í New York

Litlu munaði að tvær farþegaþotur hefðu farið of nálægt hvor annarri á John. F. Kennedy flugvellinum í New York í gær er mexíkósk farþegaþota, sem var að koma inn til lendingar, stefndi á ranga flugbraut þar sem önnur var að fara hefja flugtak.

Airbus A319 þota frá mexíkóska flugfélaginu Volaris var að koma inn til lendingar á JFK-flugvelli eftir flug frá Mexíkóborg en í stað þess að lenda á 13L brautinni var vélin komin í aðflug að 13R sem liggur samsíða.

Á 13R brautinni var hinsvegar farþegaþota frá Delta Connection af gerðinni Bombardier CRJ900 að hefja flugtak til Boston.

Airbus A319 þotan frá Volaris átti að lenda á 13L en ekki 13R

Flugumferðarstjóri náði naumlega að láta flugvélina frá Delta hætta við flugtak á sama tíma og hann lét þotuna frá Volaris hætta við aðflugið og fara í fráhvarfsflug (go around).

Á tíðninni hjá turninum mátti heyra flugmann Delta segja: „Það virðist vera flugvél að koma inn á lokastefnu“. Turninn svaraði: „Já, ég sé það. Hættu við flugtakið“.

Flugumferðarstjórinn lét svo flugmennina hjá Volaris hætta við lendingu og fór vélin í annað aðflug og lenti skömmu síðar á réttri flugbraut. Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) rannsaka nú atvikið.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga