flugfréttir
Risaþotan Air France komin aftur til Frakklands
- Var í 9 vikur á Nýfundnalandi eftir sprengingu í hreyfli í september
Airbus A380 risaþotan inn í skýli á flugvellinum í Goose Bay sl. miðvikudag
Air France hefur fengið aftur Airbus A380 risaþotuna sem lenti í Gæsaflóa á Nýfundnalandi þann 30. september sl. eftir að sprenging kom upp í einum af fjórum hreyflum hennar er vélin var á leið frá París til Los Angeles.
Í yfirlýsingu frá Air France kemur fram að flugmenn félagsins hafi flogið vélinni til baka til
Charles de Gaulle flugvallarins sl. miðvikudag en þá hafði vélin verið úr umferð vegna viðgerðar
í tæpar 10 vikur.
Vélinni hefur nú verið komið fyrir í flugskýlinu H6 á Charles de Gaulle flugvellinum sem var
sérstaklega hannað fyrir risaþotuna.
Skipt var um hreyfilinn á flugvellinum í Goose Bay eftir að Antonov An-124 fraktflugvél
flaug með varahreyfil af gerðinni GPT7200 til Nýfundnalands.
Vélin flaug því aftur til Frakklands á öllum fjórum hreyflunum en ekki þremur eins og upphaflega
stóð til þar sem áform voru um að skipta um hreyfilinn eftir að búið væri að ferja risaþotuna
til baka.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.