flugfréttir
Líftími hreyflablaða í Boeing 787 styttri en talið var
- Flugfélög framkvæma skoðun á Trent 1000 í kjölfar tveggja atvika
Trent 1000 hreyfill frá Rolls-Royce frá Air New Zealand
Nokkur flugfélög í heiminum, sem hafa Dreamliner-þoturnar í flota sínum sem koma með Trent 1000 hreyflum frá Rolls-Royce, standa frammi fyrir mögulegum seinkunum á flugi yfir jólin og áramót vegna vandamála með hreyflablöðin í mótornum.
Svo virðist sem að endingartími hreyflablaðanna sé mun styttri en gert var ráð fyrir
en tvö atvik áttu sér stað nýlega í sitthvorri Boeing 787-9 þotunni hjá Air New Zealand þar
sem vandamál kom upp með hreyfla vélanna.
Í öðru tilfellinu, sem átti sér stað sl. þriðjudag, var um að ræða Boeing 787-9 þotu hjá flugfélaginu nýsjálenska sem var á leið
frá Auckland til Tókýó þegar flugmenn tilkynntu um gangtruflanir í hreyfli skömmu eftir flugtak
en í ljós kom að öll hreyflablöðin á öðrum hreyflinum voru farin að eyðast upp og trosna.
Hreyflablöðin á annarri Boeing 787-9 þotu Air New Zealand sem
þurfti að snúa við eftir flugtak
Degi síðar kom annað sambærilegt atvik upp í annarri Boeing 787-9 þotu hjá Air New Zealand
sem var á leið til Buenos Aires og þurfti sú vél einnig að snúa við til Auckland skömmu eftir flugtak.
Báðar Dreamliner-þoturnar hjá Air New Zealand hafa verið teknar úr umferð en atvikin hafa einnig
haft áhrif á önnur félög þar sem British Airways hefur kyrrsett nokkrar Boeing 787 þotur til
að skoða hreyflana á sínum þotum og það sama má segja hjá Virgin Atlantic sem einnig hefur lagt
nokkrum Dreamliner-þotum frá því í seinustu viku.
Hreyflaframleiðandinn Rolls-Royce hafði í haust lýst því yfir að nokkrir íhlutir í Trent 1000
hreyflinum væru ekki með þann endingartíma sem gert var ráð fyrir þegar hreyfillinn var hannaður þar sem komið hefur í ljós
að þeir eyðast mun fyrr en talið var.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.