flugfréttir

Draga úr framleiðslunni niður í sex A380 risaþotur á ári

12. desember 2017

|

Frétt skrifuð kl. 22:50

Airbus A380 risaþota Singapore Airlines

Airbus er að skoða þann möguleika að hægja á framleiðsluferlinu á Airbus A380 risaþotunni með því að framleiða aðeins sex eintök á ári en flugvélaframleiðandinn evrópski hefur átt í miklum erfiðleikum með að fá fleiri pantanir í risaþotuna.

Fjórtán Airbus A380 risaþotur hafa verið afhentar á þessu ári sem senn er á enda og er stefnt á að smíða 12 risaþotur á næsta ári eða eina á mánuði.

Það er meira en helmingi færri risaþotur en þegar mest var þegar Airbus framleiddi 30 risaþotur á ári en framleiðsluhraðinn hefur minnkað upp á síðustu misseri.

Átta Airbus A380 risaþotur verða smíðaðar árið 2019 og mögulega aðeins sex risaþotur árið 2020 en það veltur þó allt á því hvort að Emirates ætli að leggja inn nýja pöntun í fleiri risaþotur.

Búist var við pöntun frá Emirates í 36 risaþotur á flugsýningunni í Dubai í nóvember en sú pöntun kom aldrei. Aðilar sem eru kunnugir málinu segja að viðræður milli Emirates og Airbus standi enn yfir.

Airbus hefur lýst því yfir að sex risaþotur á ári muni ekki valda neinu teljanlegu fjárhagstjóni fyrir Airbus og myndi það réttlæta að halda framleiðslunni gangandi á meðan engar pantanir berast.

Einnig myndi það auka svigrúm og skapa markað fyrir notaðar A380 risaþotur á meðan.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga