flugfréttir
Brandenburg-flugvöllur opnar árið 2020
Brandenburg-flugvöllurinn í Berlín átti upphaflega að opna árið 2010
Flugvallarfyrirtækið Flughafen Berlin Brandenburg hefur tilkynnt nýja dagsetningu fyrir opnun Brandenburg-flugvallarins en fram kom á blaðamannafundi í morgun að stefnt sé á að opna flugvöllinn í október árið 2020.
Búið er að fara ítarlega yfir allar framkvæmdir sem framundan eru og öll þau atriði sem þarfnast lagfæringar og segir stjórn flugvallarins að október 2020 sé raunhæf dagsetning fyrir opnunina.
Næst á dagskrá er að ganga frá fjármögnun við þær framkvæmdir sem framundan eru á lokasprettingum
svo hægt sé að standa við opnunardagsetninguna.
Ný stjórn flugvallarins komst að því í haust að skipulagið, sem fyrri stjórn skildi eftir sig, var mjög ábótavant og sé því mun meiri vinna framundan en gert var ráð fyrir og þá sérstaklega er kemur að brunavörnum.
11 ár eru frá því að framkvæmdir hófust við flugvöllinn sem upphaflega átti að opna árið 2010
en fljótlega kom í ljós að árið 2012 var raunhæfari dagsetning. Síðan þá hefur opnun
flugvallarins verið frestað alls sex sinnum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.