flugfréttir
Flugslys í Rússlandi: Antonov TVS-2MS fórst í flugtaki
Flak vélarinnar í morgun við flugvöllinn í Naryan-Mar
Fjórir eru látnir eftir að eins hreyfils tvíþekja af gerðinni Antonov TVS-2MS brotlenti í flugtaki í Rússlandi í morgun.
Vélin fór í loftið frá flugvellinum í bænum Naryan-Mar í norðurhluta Rússlands við
strendur Norður-Íshafsins og var förinni heitið til Kharuta-flugvallarins í Khoseda-Khardsky.
Sjónarvottur á jörðu niðri náði myndskeiði af vélinni í flugtaki og má sjá hvar hún tekur beygju til vinstri þegar hún er nýfarin í loftið og missir því næst hæð og steypist niður til jarðar. Getgátur eru um að vélin hafi misst afl eftir flugtak en rannsókn stendur nú yfir.
Þrettán voru um borð í vélinni; ellefu farþegar og tveir flugmenn en meðal þeirra
fjögurra sem létu lífið var ung kona með fjögurra ára gamalt barn.
Átta manns voru fluttir alvarlega særðir á spítala, tveir hafa gengist undir aðgerð
en einn slapp með minniháttar skrámur.
Antonov TVS-2MS er skrúfuþotuhreyfilsútgáfa af Antonov An-2 vélinni sem var breytt
af Siberian Aeronauticla Research Institude (SibNIA) árið 2014 en Antonov An-2
vélarnar voru smíðaðar með bulluhreyfli frá árunum 1947 til ársins 2001.
Flugvélin flaug á vegum fyrirtækis sem sér um farþega- og póstflutninga milli
afskektra bæja í héraðinu auk þess sem flogið er með námuverkamenn til vinnu.
Myndband:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.