flugfréttir

Metfjöldi fór um Heathrow-flugvöll árið 2017

- 78 milljónir flugu um LHR í fyrra

12. janúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 08:46

Boeing 777 þota British Airways í lendingu á Heathrow-flugvelli þann 27. desember sl.

Met var sett í farþegafjölda á Heathrow-flugvelli í fyrra en 77,9 milljónir farþega fóru um LHR árið 2017 og hafa aldrei eins margir farþegar farið áður um völlinn á einu ári.

Þetta er 3.1% aukning frá árinu 2016 þegar 75,7 milljónir fóru um völlinn en þessi aukning er að mestu tilkomin þar sem fleiri flugfélög fljúga stærri þotum til Heathrow-flugvallarins auk þess sem sætanýting hefur aukist í hverri flugvél.

Að öðru leyti er Heathrow-flugvöllurinn starfræktur með fullri nýtingu frá morgni til kvölds.

Þá var einnig set met í flugfrakt en árið 2017 fóru 1.7 milljón rúmmetrar af frakt um flugvöllinn sem samsvarar 134.000 tveggja hæða strætóum eins og finna má á götum Lundúna.

Þá hefur hávaði frá Heathrow-flugvellinum ekki mælst eins lítill í 11 ár en 15% færri heimilu urðu fyrir hávaða sem miðast við sérstök mörk sem sett hafa verið en fleiri flugfélög hafa verið hvött til þess að fljúga hljóðlátari þotum til flugvallarins.

Þá fækkaði flugtökum og lendingum að næturlagi um 32% árið 2017.

Um helmingur allra þeirra flugvéla sem fóru um Heathrow-flugvöll árið 2017 voru á leið til Evrópu með um 32 milljónir farþega en næststærsti markaðurinn er Norður-Ameríku en þangað flugu 17,3 milljónir farþega.

Þá voru 11,2 milljónir farþega sem flugu til Asíu og til Ástralíu árið 2017 og 4,8 milljónir flugu innan Bretlands.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga