flugfréttir
Arlanda-flugvöllur tekur í notkun hlið fyrir risaþotur
- Ekkert flugfélag flýgur þó enn risaþotum til Stokkhólms
Frá Arlanda-flugvellinum í Stokkhólmi
Arlanda-flugvöllurinn í Stokkhólmi er nú tilbúinn til að taka við risaþotunni Airbus A380.
Búið er að taka í notkun nýtt hlið sem hefur fengið númerið F66 sem er sérstakleg ætlað flugvélum með breitt vænghaf.
Hliðið kemur með tveimur landgöngum sem leggjast að sitthvorri hæðinni á Airbus A380 og með því er hægt að koma fyrir yfir 500
farþegum í risaþotuna innan 35 mínútna.
Þá er verið að leggja lokahönd á hlið F32 sem verður sambærilegt hlið svo hægt sé að taka á móti tveimur stórum
flugvélum á borð við Airbus A380, Boeing 747 eða Boeing 777X þegar sú vél kemur á markað.
Þrátt fyrir nýju risaþotuhliðin þá er ekkert flugfélag sem flýgur svona stórum vélum í dag til Arlanda-flugvallarins en Ole Wieth Christensen, yfirmaður
flugvallarins, segir að Arlanda-flugvöllur vill vera reiðubúin því þegar að því kemur.
Emirates flýgur í dag til Stokkhólms með Boeing 777-300ER en svo gæti farið að félagið muni skipta út þeirri vél fyrir
risaþotuna A380 og væri flugvöllurinn því tilbúinn fyrir það.
Risaþotan hefur þó nokkrum sinnum lent á Arlanda-flugvelli en þá hefur oftast verið um að ræða flugvél sem hefur þurft
að lenda vegna veiks farþega um borð.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.