flugfréttir
Zambia Airways mun fljúga á ný eftir 24 ára hlé
- Ethiopian Airlines mun aðstoða við stofnun félagsins
McDonnell Douglas DC-10 breiðþota Zambia Airways á flugvellinum í Jóhannesarborg
Zambia Airways ætlar að hefja sig aftur á loft en flugfélagið varð gjaldþrota fyrir 24 árum síðan.
Ethiopian Airlines hefur gert samning við ríkisstjórnina í Zambíu um að aðstoða við að koma flugfélaginu aftur á fót
en ríkisstjórn landsins mun eiga 55% hlut í Zambia Airways á meðan Ethiopian Airlines mun eiga 45 prósent.
Með þessu mun Ethiopian Airlines tryggja sér markaðshlutdeild í sunnanverði Afríku og íbúar landsins munu fá aðgang
að bættari flugsamgöngum til annara landa í gegnum flugvöllinn í Addis Ababa, höfuðborg Eþíópíu.
Stefnt er á að Zambia Airways muni hefja innanlandsflug og flug til nærliggjandi svæða fyrst um sinn áður en félagið snýr
sér að millilandaflugi.
Zambia Airways, sem var ríkisflugfélagið í Zambíu, var stofnað árið 1964 og hafði félagið ýmsar tegundir flugvéla í flota
sínum áður en það varð gjaldþrota á borð við vélar eins og Boeing 707, Douglas DC-8, Boeing 737-200, DC-10, BAC One-Elven
auk annarra véla.
Zambia Airways flaug meðal annars til John F. Kennedy flugvallarins í New York, til Frankfurt auk áfangastaða á borð við
Róm, Bombay og fjölda áfangastaða í Afríku en félagið varð gjaldþrota árið 1994.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.