flugfréttir
Emirates gerir samkomulag um fleiri risaþotur frá Airbus
- Framtíð risaþotunnar bjargað fyrir horn í bili
Forstjóri Emirates, Sheikh Ahmed bin Saeed Al Maktoum, skrifar undir samninginn ásamt John Leahy, sölustjóra Airbus
Emirates hefur skrifað undir við samkomulag við Airbus um pöntun á allt að 36 Airbus A380 risaþotum.
Þetta er hluti af þeim samningi sem Airbus hefur beðið eftir í nokkra mánuði og átti framleiðandinn
von á þessari pöntun frá Emirates á flugsýningunni í Dubai í nóvember í fyrra.
Um er að ræða samkomulag um pöntun í tuttugu risaþotur með kauprétt á sextán til viðbótar en fyrsta Airbus A380 þotan,
sem tilheyrir þessari pöntun, verður afhent árið 2020.
Ekki er um pöntun sem slíka að ræða og einingis skriflegt samkomulag áður en formleg pöntun verður
lögð inn.
Forstjóri Emirates, Sheikh Ahmed bin Saeed Al Maktoum, sem skrifaði undir samninginn ásamt John Leahy, sölustjóra
Airbus, segir að þetta muni koma á jafnvægi á framleiðslunni á risaþotunni og tryggja smíði hennar áfram.
Airbus hefur að undanförnu gefið í skyn að án nýrrar pöntunnar í Airbus A380 frá Emirates verði
framleiðslu risaþotunnar hætt á næstu árum.
Emirates er stærsti risaþotuviðskiptavinur Airbus en félagið hefur tekið við yfir 101 Airbus A380 risaþotu
og á félagið eftir að fá 41 eintak afhent til viðbótar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.