flugfréttir

Leggja til að þriðja flugbrautin verði 300 metrum styttri

- Myndi spara 355 milljarða króna

19. janúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 22:51

Frá Heathrow-flugvellinum í London

Lögð hefur verið fram tillaga sem miðar af því að stytta þriðju flugbrautina á Heathrow-flugvellinum í London en tillagan hefur verið kynnt með nokkrum breytingum varðandi framkvæmdir á þriðju brautinni sem til stendur að hefja framkvæmdir á.

Meðal annars er lagt til að þriðja flugbrautin verði 300 metrum styttri en upphafleg lengd gerir ráð fyrir í þeim tilgangi að draga úr kostnaði sem hleypur á yfir 2 þúsund milljörðum króna.

Ríkisstjórn Bretlands hefur nú þegar gefið leyfi fyrir framkvæmdum á þriðju flugbrautinni en jafnframt er mælt er með því að lendingargjöld verði ekki hækkuð á flugfélögin þar sem það myndi einungis bitna á farþegum.

Helmingurinn af þeirri flugumferð sem fer um Heathrow-flugvöll er á vegum British Airways en flugfélagið breska hefur kvartað mikið undan þeim kostnaði sem fylgir framkvæmdunum við nýju brautina.

Talið er að kostnaðurinn við þriðju flugbrautina muni nema um 2.387 milljörðum króna en með því að stytta brautina úr 3.500 metrum niður í 3.200 metra er áætlað að hægt verða á minnka kostnaðinn um 355 milljarða.

Þrátt fyrir að þriðja flugbrautin verði stytt um 300 metra þá mun hún samt fara yfir það svæði þar sem M25 hraðbrautin liggur í dag sem er ein stærsta hraðbrautin á Bretlandi sem liggur í kringum London.

Þess í stað er lagt til að færa hraðbrautina ofan í göng undir flugbrautina og færa hraðbrautina til vesturs.

Gert er ráð fyrir að þriðja bautin verði staðsett norðvestur af Heahthrow-flugvelli en nákvæmlega hvar mun velta á niðurstöðum úr þeim fjörutíu fundum sem framundan eru með íbúum á svæðinu í vor.

Ekki er talið að framkvæmdum við þriðju flugbrautina muni ljúka fyrr en í fyrsta lagi eftir 8 ár og væri því hægt að taka hana í notkun árið 2025.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga