flugfréttir

Gulfstream hættir framleiðslu á G-IV eftir 30 ára smíði

- Síðasta G450 var afhent fyrir helgi

21. janúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 16:44

Gulfstream G450 einkaþotan kom á markaðinn árið 2005

Gulfstream hefur tilkynnt að framleiðandinn hafi afhent seinasta eintakið af Gulfstream G450 einkaþotunni og endar þar með 30 ára löng smíði á GIV kynslóðinni af einkaþotunum.

Síðasta eintakið var afhent þann 19. janúar sl. en Gulfstream G450 kom á markaðinn árið 2005 en fyrsta einkaþotan af þessari tegund var Gulfstream IV og kom hún á markaðinn árið 1985.

Alls fékk Gulfstream pantanir í 360 eintök af G450 einkaþotunni á 12 ára tímabili en pöntunum tók að fækka eftir að Gulfstream 500 var kynnt til leiks árið 2014 en sú vél átti að koma á markað fyrir áramót en afhendingum hefur seinkað fram á vor.

Gulfstream segir að framleiðslunni á G450 hefur nú verið hætt á sama tíma og verið er að setja allt á fullt með smíði Gulfstream G500.

Gulfstream G500 kemur með stærra farþegarými, „fly-by-wire“ stjórntækni og PW800 hreyfla frá Pratt & Whitney og mun vélin hafa flugdrægi upp á 9.630 kílómetra á hraðanum Mach 0.85.

Fimm G500 einkaþotur hafa verið smíðaðar sem gangast núna undir flugprófanir og er vonast til þess að vélin fái flughæfnisvottun með vorinu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga