flugfréttir

Von á nýju útliti fyrir Lufthansa

- Guli liturinn mun hverfa að mestu

22. janúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 07:00

Talið er að þetta séu nýju litir Lufthansa en það hefur þó ekki fengist staðfest

Lufthansa ætlar sér að breyta litum félagsins og kynna nýjan búning á flugflota félagsins en núverandi litir Lufthansa hafa verið í óbreyttri mynd í marga áratugi.

Óstaðfestar fregnir herma að búið sé að ákveða nýja liti en ekki er vitað hvenær þeir verða formlega kynntir en samkvæmt heimildum verður það þann 7. febrúar.

Fram kemur að ein af Boeing 747-8 júmbó-þotum félagsins sé nú í málningarskýli í Róm þar sem verið er að mála vélina í nýjum litum.

Á meðan tekið er fram að ekki sé um mikla breytingu að ræða og einungis „andlitslyftingu“ á núverandi búningi á flugflota þá eru aðrar heimildir fyrir því að litir Lufthansa séu að taka miklum breytingum.

Flugfloti Lufthansa hefur verið óbreyttur að mestu allt frá sjöunda áratugnum en núverandi litir voru teknir í notkun árið 1988 og hafa vélar félagsins einkennst af bláu stéli með gulu merki og gráum fleti að neðan á skrokknum.

Fram kemur að guli liturinn muni að mesta hverfa og er þá von á því að merkið í stéli vélanna verði hvítur og heildarlitirnir því að mesta samanstanda af bláum og hvítum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga