flugfréttir
Léttara flugtímarit sparar United 29 milljónir króna í eldsneyti
- Tímaritið Hemispheres er í dag 28 grömmum léttara
Hemispheres er eitt af flugtímaritum sem finna má um borð í flugvélum United Airlines
United Airlines segir að félagið hafi náð að spara sér um 170.000 gallon af eldsneyti eftir að byrjað var að prenta flugtímaritið um borð í vélum félagsins með léttari pappír.
United Airlines flýgur um 4.500 flugferðir á dag, alla daga ársins, og þegar um slíkan fjölda
flugferða er að ræða þá telur hvert einasta gramm þegar upp er staðið.
Hemispheres er eitt af þeim tveimur tímaritum sem gefið er út fyrir farþega til að lesa um borð í vélum United Airlines
en blaðið kemur út mánaðarlega og lesa um 139 milljónir farþega blaðið árlega.
United Airlines segir að ákveðið hafi verið að skipta um léttari pappír til prentunar en hvert eintak
vó 213 grömm en með léttari pappír er tímaritið núna 28 grömmum léttara.
Þegar kemur að flugi þá skiptir hvert einasta kíló máli er varðar þyngd vélarinnar og sérstaklega hjá flugfélagi sem flýgur yfir 4.000 flugferðir á dag
United Airlines hefur 744 flugvélar í flota sínum sem taka allt frá 50 upp í 366 farþega en miðað við Boeing 737
þotur félagsins, sem taka 179 farþega, þá nemur breytingin um 4.9 kílóum á hverja vél.
United Airlines segir að með léttara tímariti sé félagið að spara sér 170.000 gallon af eldsneyti
sem samsvarar tæpu hálfu tonni af eldsneyti á ári sem jafngildir sparnaði upp á 29 milljónir króna.
United Airlines hætti í fyrra að selja tollfrjálsan varning um borð í vélum sínum á borð
við ilmvötn, sælgæti og áfengi en með því hefur félagið sparað sér 1.4 milljón gallon
af eldsneyti á ári sem kostar 237 milljónir króna.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.