flugfréttir

Tvær þyrlur rákust saman á flugi í Frakklandi í morgun

- Að minnsta kosti fimm látnir

2. febrúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 15:30

Frá slysstað í morgun milli Marseille og Nice

Að minnsta kosti fimm eru látnir eftir að tvær þyrlur brotlentu eftir að hafa rekist á hvora aðra á flugi í suðurhluta Frakklands í morgun.

Báðar þyrlurnar voru kennsluþyrlur af gerðinni SA341 sem framleiddar eru af franska framleiðandanum Aérospatiale Gazelle en þyrlurnar voru í æfingum er slysið átti sér stað þar sem verið var að þjálfa nýja þyrluflugmenn í franska hernum.

Þyrlurnar féllu til jarðar skammt undan bænum Carcés sem er staðsettur mitt á milli Marseille og Nice og kom önnur þyrlan niður á vegi en hin brotlenti skammt frá og varð alelda.

Frönsk yfirvöld segja að þrír hafi látist sem voru um borð í annarri þyrlunni og tveir í hinni en ekki hefur verið gefið upp hversu margir voru í þyrlunum og hvort einhver hafi komist lífs af.

Brak úr þyrlunum dreifðist yfir stórt svæði sem er að mestu óbyggt en engann sakaði á jörðu niðri.

Báðar þyrlurnar voru í eigu EALAT herflugskólans sem þjálfar nýja þyrluflugmenn fyrir franska herinn.

Slysið átti sér stað klukkan 8 í morgun að íslenskum tíma:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga