flugfréttir
Flugslys: Rússnesk farþegaþota fórst skömmu eftir flugtak
- Yfir 70 um borð og enginn komst lífs af
Flugvélin sem fórst var af gerðinni Antonov An-148
Enginn komst lífs af er rússnesk farþegaþota af gerðinni Antonov An-148 frá flugfélaginu Saratov Airlines fórst skömmu eftir flugtak frá Domodedovo-flugvellinum í Moskvu í morgun.
Vélin var á leiðinni til borgarinnar Orsk í Rússlandi, nálægt landamærum Kazakhstan, með 65 farþega um borð og sex manna áhöfn
og var vélin komin í 6.000 feta hæð þegar hún hvarf skyndilega af ratsjá, tíu mínútum eftir flugtak.
Vélin hóf sig á loft klukkan 11:21 í morgun að íslenskum tíma en seinasta ratsjárssamband við vélina
var klukkan 14:27.
Flak vélarinnar fannst skömmu síðar á akri í um 40 kílómetra fjarlægð norðaustur af Domodedovo-flugvellinum, austur
af Moskvu.
Um 50 lík hafa fundist á slysstað og greinir rússneska fréttastofan TASS frá því að enginn hafi komist lífs
af í slysinu.
Brak úr vélinni á slysstað
Sjónarvottar segjast hafa séð vélina falla til jarðar í tveimur hlutum og þá eru óstaðfestir fregnir sem herma að vélin hafi
lent í árekstri við þyrlu frá rússnesku póstþjónustunni.
Flugvélin sem fórst er sjö ára gömul, smíðuð árið 2011, en Saratov Airlines keypti þotuna í fyrra og hefur félagið eina aðra slíka
í flotanum.
Unnið er að rannsókn slyssins og hafa flugslysasérfræðingar verið sendir á slysstað en rússneska samgönguráðuneytið
segir að að svo stöddu séu orsök slyssins ókunn.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.