flugfréttir
Flugslys í Noregi: Piper PA-28 fór í sjóinn eftir flugtak
- Tveir flugmenn um borð létust í slysinu
Vélin sem fórst var með skráninguna LN-TOS og var hún smíðuð árið 2005
Tveir eru látnir eftir flugslys í Noregi eftir að eins hreyfils flugvél af gerðinni Piper PA-28 Cherokee brotlenti í gærkvöldi skömmu eftir flugtak í sjónum undan bænum Svolvær.
Vélin fór í loftið frá Svolvær-Helle flugvellinum klukkan 20:30 að norskum tíma og var förinni heitið
til Tromsö en vélin missti hæð skömmu eftir flugtak og endaði í sjónum.
Starfsmenn í flugturninum urðu vitni að slysinu og var fjölmennt neyðarteymi kallað út og fannst
flak vélarinnar í sjónum 18 mínútum eftir flugtak og einnig þeir sem um borð voru.
Þeir sem voru um borð voru báðir flugmenn og meðlimir í flugklúbbnum Tromsø Flyklubb sem er einnig flugskóli
sem kennir einkaflug.
Sérfræðingar frá rannsóknarnefnd flugslysa í Noregi voru sendir á staðinn í morgun til að rannsaka
orsök slyssins.
Þetta er fyrsta flugslysið í sögu flugklúbbsins í Tromsö frá því hann var stofnaður árið 1946
en alls eru 80 meðlimir í klúbbnum og er helmingur þeirra virkir meðlimir sem fljúga reglulega.
Flugvellinum í Svolvær verður lokað frameftir degi í dag í kjölfar slyssins
til að gefa starfsfólkinu frí sem var á vakt í gærkvöldi.
Frá björgunaraðgerðum í gærkvöldi
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.