flugfréttir

Airbus A321LR tilraunaþotan þurfti að snúa við til Parísar

- Einn í áhöfninni gleymdi að sækja um ESTA ferðaheimild til Bandaríkjanna

13. febrúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 22:27

Airbus A321LR tilraunaþotan (D-AVZO) á Charles de Gaulle flugvellinum í París í morgun

Fyrsta eintakið af hinni langdrægu Airbus A321LR þotu er nú í þann mund að nálgast New York eftir sitt fyrsta tilraunaflug yfir Atlantshafið en vélin lagði af stað frá Charles de Gaulle flugvellinum í París í dag klukkan 15:17 að íslenskum tíma.

Vélin átti upphaflega að leggja af stað í flugið í hádeginu en 8 mínútum eftir flugtak mundi einn áhafnarmeðlimurinn eftir því að hann hafði gleymt að fylla út ESTA sem er ferðaheimild sem þarf að vera við höndina þegar ferðast er til Bandaríkjannna á undanþágu frá vegabréfsáritun.

Airbus A321LR þotan þurfti því að snúa við og lenti hún á Le Bourget-flugvellinum í stað Charles de Gaulle klukkan 12:28 að íslenskum tíma.

Vélin snéri við 8 mínútum eftir flugtak frá París CDG og lenti á Le Bourget-flugvellinum.

Tæpum þremur tímum síðar, eftir að búið var að ganga frá ESTA ferðaheimildinni, fór vélin aftur í loftið, kl. 15:17 og hélt hún loks af stað í fyrsta flugið yfir Atlantshafið en klukkan 22:02 í kvöld var vélin í 33.000 fetum yfir Maine í Bandaríkjunum og átti um 40 mínútur eftir til Kennedy-flugvallarins í New York.

Flugið er liður í flugprófunum fyrir Airbus A321LR þotuna en sérstaklega verður einblínt á langflugsdrægni þotunnar sem er sú mesta í flokki mjóþotna sem koma með einum gangi.

Flugferill A321LR þotunnar (D-AVZO) á Flightradar24.com kl. 22:18







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga