flugfréttir
Bandaríkjaher ætlar að fljúga B-52 til ársins 2050
- B-1B Lancer og B-2 Spirit fara úr flotanum um miðjan þriðja áratuginn
Boeing B-52 Stratofortress í lendingu í Las Vegas
Bandaríski flugherinn hefur tilkynnt að til standi að nota Boeing B-52 Stratofortress sprengjuflugvélarnar áfram næstu 30 árin að minnsta kosti.
Ef B-52 sprengjuvélarnar munu fljúga áfram innan bandaríska flughersins til ársins 2050 gætu þær því orðið elstu flugvélarnar sem munu fljúga um jörðina þegar þar að kemur en B-52 flaug fyrst árið 1952.
Heather Wilson, ritari bandaríska flughersins, tilkynnti á mánudag að til stæði að hætta með Rockwell B-1B Lancer og B-2 Spirit
sprengjuvélarnar um leið og nýja B-21 Raider sprengjuþotan frá Northrop Grumman verður tilbúin.
Bæði B-1B Lancer og B-2 Spirit eru mjög dýrar í rekstri en bandaríski flugherinn tók þær í notkun árið 1986 og árið 1997
en núna hefur komið í ljós að þær munu eiga um 15 ár eftir í flotanum. Fyrstu B-21 Raider þoturnar verða afhentar um miðjan þriðja áratuginn.
B-52 Stratofortress og B-2 sprengjuþotur
B-52 Stratofortress sprengjuvélarnar eiga hinsvegar von á að lifa mun lengur en þær eru yfir 20 árum eldri en B-1B Lancer þoturnar
og hafa flogið innan hersins frá árinu 1955 eða í 63 ár og virðast eiga því að minnsta kosti 32 ár eftir.
B-52 þoturnar hafa staðið sig vel innan bandaríska flughersins þar sem þær geta borið mikið magn af skotfærum og sprengjum, flogið langar vegalengdir og þurfa ekki mikið viðhald þrátt fyrir háan aldur.
Til stendur að uppfæra B-52 sprengjuvélarnar með nýjum búnaði og hefur bandaríski flugherinn farið fram á fjármagn
frá bandarískum stjórnvöldum upp á 28 milljarða svo hægt sé að koma fyrir nýjum búnaði.
Boeing smíðaði átta mismunandi útgáfur af B-52 Stratfortress vélinni á sínum tíma og voru yfir 740 eintök smíðuð frá árinum 1952
til 1962 en aðeins eru 75 eintök eftir í flota bandaríska hersins.
Vélarnar hafa að undanförnu verið notaðar í hernaðaráætlunum í Afghanistan, Írak og í Sýrlandi og í seinustu viku voru B-52
sprengjuvélarnar notaðar í aðgerðum gegn talíbönum í norðurhluta Afghanistan.
B-1B sprengjuþotan, B-2 Spirit og B-52 Stratofortress
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.