flugfréttir

Hætta að fljúga til Aberdeen og Belfast

- Munu einnig hætta að fljúga milli Akureyrar og Keflavíkur

14. febrúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 18:06

Bombardier Dash 8 Q400 flugvél Air Iceland Connect á Reykjavíkurflugvelli

Air Iceland Connect mun í vor hætta bæði fluginu milli Akureyrar og Keflavíkur og einnig flugi til Belfast og Aberdeen sem flogið hefur verið frá Keflavíkurflugvelli fyrir hönd Icelandair.

Fram kemur að ástæðan sé sú að ekki hefur verið næg eftirspurn eftir flugsætum á þessum leiðum og ætlar Air Iceland Connect að einblína frekar á aðra áfangastaði í innanlandsflugi sínu og í flugi til Grænlands.

Árni Gunnarsson, framkvæmdarstjóri Air Iceland Connect, bendir á að áhrif af Brexit hafi einnig sett strik í reikninginn hvað varðar flugið til Bretlandseyja.

Icelandair byrjaði að fljúga til Aberdeen í Skotlandi þann 9. mars árið 2016 og hefur verið flogið þangað með Bombardier Dash 8 Q400 vélum frá Air Iceland Connect en seinasta flugið til Aberdeen verður flogið um miðjan maí.

Rúmu ári síðar, eða þann 1. júní í fyrra, var fyrsta flugið flogið til Belfast á Norður-Írlandi en það flug mun einnig taka enda í maí í vor.

Samkvæmt frétt á Túristi.is kemur einnig fram að Air Iceland Connect búist við því að reyna að selja eina Bombardier-flugvél en ekki er vitað hvort það verði Q400 eða Q200 flugvél.

Töluvert hefur dregist úr eftirspurn eftir flugi milli Bretlands og Íslands og hafa bæði WOW air og Icelandair brugðist við því en WOW air hefur hætt flugi sínu til Bristol og þá mun Icelandair ekki fljúga lengur til Birmingham.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga