flugfréttir
Stefna á að fljúga til miðríkjanna með Airbus A321LR
- Detroit, Minneapolis og Philadelphia koma til greina
Tölvugerð mynd af Airbus A321LR í litum Norwegian
Norwegian ætlar sér að hefja flug bæði til austurstrandar Bandaríkjanna og til miðríkjanna með Airbus A321LR þotunni.
Þetta kom fram er Bjørn Kjos, framkvæmdarstjóri Norwegian, kynnti afkomu félagsins eftir árið 2017 en Norwegian
ætlar sér að staðsetja átta Airbus A321LR þotur á Gatwick-flugvellinum í London frá árinu 2020.
Til stendur að vélarnar muni fljúga til bandarískra borga á borð við Detroit, Minneapolis og Philadelpia
og þá er einnig verið að íhuga að hefja flug til Miðausturlanda frá Gatwick og kemur Kúvætborg og Amman
helst til greina sem nýir áfangastaðir.
Norwegian mun árið 2019 fá átta Airbus A321LR þotur afhentar og ætlar félagið að auka umsvif
sín töluvert frá Bretlandi bæði til Norður-Ameríku, Suður-Ameríku og til Asíu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.