flugfréttir

Boeing 737 skrokkur númer 10.000 ferjaður til Renton

- Hálfri öld eftir að fyrstu skrokkurinn fyrir Boeing 737-100 var smíðaður

15. febrúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 15:50

Tíuþúsundasti skrokkurinn fyrir Boeing 737 á leið til Renton með lest

Fyrirtækið Spirit AeroSystems afhenti á dögunum tíuþúsundasta skrokkinn fyrir Boeing 737 sem var þann 14. febrúar ferjaður með lest frá Wichita í Kansas til Boeing-verksmiðjanna í Renton.

Skrokkurinn kom út úr verksmiðjunni í Wichita þann 13. febrúar eða 50 árum og 10 dögum eftir að fyrsti skrokkurinn var afhentur til Boeing þann 10. febrúar árið 1968 fyrir Boeing 737-100 þotu Lufthansa.

Spirit AeroSystems smíðar 70% af þeim íhlutum sem Boeing 737 samanstendur af og þar á meðal skrokk vélanna en framleiðslan hefur gengið í gegnum fjórar kynslóðir af Boeing 737 þotum í hálfa öld.

Boeing 737 skrokkur númer 10.000 var framleiddur fyrir Boeing 737 MAX 8 þotu sem verður afhent til Southwest Airlines sem hefur pantað 210 eintök af Boeing 737 MAX 8 þotunni en félagið á einnig von á þrjátíu þotum af gerðinni Boeing 737 MAX 7.

Boeing hefur tilkynnt að í ár muni framleiðsluhraðinn aukast upp í 52 þotur á mánuði og upp í 57 þotur á mánuði árið 2019.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga