flugfréttir

Flugfélag lögsótt fyrir of dýr flugfargjöld

- Lækkuðu fargjöld um helming þegar nýtt flugfélag kom á markaðinn

15. febrúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 19:21

Farþegar ganga um borð í flugvél SA Airlink

Suðurafríska flugfélagið SA Airlink, dótturfélag South African, hefur verið lögsótt fyrir of há flugfargjöld.

Það er samkeppniseftirlitið í Suður-Afríku sem hefur lögsótt félagið en í málsögnum segir að flugfargjöld félagsins sé rándýr og var ákveðið að sækja félagið til saka í kjölfar fjölda kvartanna frá farþegum.

Fram kemur að sérstaklega sé um að ræða of dýr fargjöld á flugleiðinni á milli Jóhannesarborgar og borgarinnar Mthatha í austurhluta landsins.

Verð á farmiðum aðra leiðina hjá SA Airlink milli Jóhannesarborgar og Mthatha voru 34.000 krónur áður en samkeppnisflugfélagið Fly Blue Crane kom á markaðinn árið 2015 en það félag bauð farþegum upp á flug milli borganna fyrir 6.700 krónur.

SA Airlink hefur sjö Jetstream 41 flugvélar í flotanum

Eftir að Fly Blue Crane byrjaði að fljúga milli borganna lækkaði SA Airlines fargjöldin niður í 17.000 krónur en Fly Blue Crane hætti starfsemi tveimur árum síðar eða í fyrra en eftir það hækkuðu fargjöld félagsins á ný.

Fram kemur að SA Airlink hafi haft af farþegum frá 760 til 930 milljónir króna frá árinu 2012 til ársins 2016 sem farþegar hefði annars sparað sér.

Þá kemur fram að lægri fargjöld á þessu tímabili hefði einnig þýtt að fleiri farþegar hefðu flogið með félaginu sem hefði skilað sér í betri efnahag fyrir Mthatha og nágrenni.

Embraer-þota SA Airlink

Samkeppniseftirlitið fer fram á að stjórn SA Airlink greiði 10% af hagnaði félagsins sl. árs til þeirra farþega sem þurftu að greiða hátt verð fyrir fargjöldin.

Núverandi fargjöld hjá SA Airlink á milli Jóhannesarborgar og Mthatha sé bókað í dag eru frá 9.600 krónum upp í 28.000 krónur en þess má geta að fjarlægðin milli borganna tveggja eru um 600 kílómetrar og er flugtíminn 1 klukkustund og 15 mínútur.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga