flugfréttir
Framkvæmdir hafnar á nýjum flugvelli fyrir Mumbai
- Fjölmennasta borg Indlands með aðeins eina flugbraut
Nýi flugvöllurinn mun rísa austur af Mumbai
Framkvæmdir eru loksins að fara að hefjast á nýjum flugvelli í Mumbai, tveimur áratugum eftir að fyrst var lögð fram tillaga um nýjan flugvöll fyrir fjölmennustu borg Indlands.
Hornsteinn var í gær lagður við landið þar sem flugvöllurinn verður staðsettur við hátíðlega athöfn sem markar upphaf framkvæmdanna.
Mumbai hefur aðeins haft einn flugvöll sem hefur í dag aðeins eina flugbraut og er orðið virkilega þröngt á þingi þar sem plássleysi á vellinum er orðið vandamál.
Það var árið 1997 sem fyrst var lögð fram tillaga um að hefja framkvæmdir á nýjum flugvelli fyrir
Mumbai en gert er ráð fyrir að 60 milljónir farþega eigi eftir að fara um nýja flugvöllinn þegar
hann opnar en völlurinn hefur fengið nafnið Navi Mumbai International Airport.
Indland hefur dregist töluvert aftur úr öðrum löndum í Asíu sem hafa þegar brugðist við sívaxandi fjölgun flugfarþega
með framkvæmdum á nýjum flugvöllum.
Frá hátíðarhöldum í gær framkvæmdir við völlinn hófust formlega
„Það eru engin fleiri pláss laus í Mumbai. Öll flugfélögin hafa lent á vegg og það er ekki gott þegar
svona stór borg getur ekki bætt við fleiri flugferðum“, segir Sanjiv Kapoor.
Met var slegið á flugvellinum í Mumbai í fyrra þegar 969 flugtök og lendingar áttu sér stað á flugvellinum á einum
sólarhring sem telst einnig met fyrir flugvöll sem hefur aðeins eina flugbraut.
Tölvugerð mynd af Navi Mumbai International Airport
Flugvöllurinn í Mumbai hefur tæknilega tvær flugbrautir sem þvera hvora aðra en árið 2013 var ákveðið
að nota aðeins aðra flugbrautina þar sem í ljós kom að aðflug að einni flugbraut bauð upp á meiri
afköst.
Að meðaltali þá eyðir hver flugvél um 45 mínútum í að hringsóla í nágrenni borgarinnar á meðan
beðið er eftir lendingarheimild vegna þrengsla.
Framkvæmdirnar við nýja flugvöllinn munu ganga mjög hratt fyrir sig þar sem stefnt er á að taka fyrsta áfanga flugvallarins í notkun í desember árið 2019
með einni flugbraut og einni flugstöð.
Mörg ár eru síðan að skiltum var komið upp vegna nýja flugvallarins en framkvæmdir hafa setið á hakanum vegna skrifræðis og pólitískra deilna
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.