flugfréttir
Vilja opna Manston-flugvöllinn í Kent aftur
- Núverandi eigandi vill selja landið undir 4.000 íbúðir
Frá Manston-flugvellinum í Kent
Fjárfestingarfyrirtæki eitt í Bretlandi reynir nú að opna aftur Manston-flugvöllinn á suðurhluta Englands með tilraun til þess að taka yfir flugvallarsvæðinu frá núverandi eigendum sem vilja nota landið til að selja lóðir fyrir íbúðarhverfi.
Eigendur Manston-flugvallarins ákváðu að loka vellinum í maí árið 2014 þar sem ekki tókst að finna nýja fjárfesta til að koma að rekstrinum.
Ryanair hefur áhuga á að fljúga um völlinn ef hann opnar á ný og hefur félagið áhuga
á að vera með tvær til fjórar flugvélar á flugvellinum ef hann opnar aftur.
Fyrirtækið RiverOak Investment Corporation reynir nú að fá leyfi frá samgönguráðuneyti Bretlands til að
þvinga Stone Hill Park, núverandi eigendur flugvallarins, til að selja flugvöllinn til fyrirtækisins en RiverOak hefur
áform um að opna Manston-flugvöllinn aftur þar sem mikil tækifæri eru til staðar bæði fyrir farþegaflug og fraktflug.
Manston-flugvellinum var lokað árið 2014
Stone Hill Park vill hinsvegar láta reisa um 4.000 nýjar íbúðir á flugvallarsvæðinu en rekja má sögu flugvallarins
aftur til ársins 1915 og er því meira en öld síðan að flugvélar fóru að fljúga um þetta svæði.
„Ryanair flýgur ekkert sunnan Thames-árinnar fyrir utan nokkur flug um Gatwick og þeir hafa stór áform um aukin umsvif á næstunni. Þeir fljúga með 125 milljónir farþega á ári og stefna á 200 milljónir árið 2024 og þessvegna henar Manston-flugvöllur mjög vel til að stuðla að þeirri aukningu“, segir í Tony Freudmann hjá
RiverOak.
„Þetta yrði ekki bækistöð fyrir Ryanair en þeir myndi hafa þrjár til fjórar flugvélar þarna yfir nóttu. Við sjáum fyrir okkur að þeir gætu flogið á morgnanna til landa eins og Portúgals og til baka, þaðan til Skotlands til dæmis yfir daginn og svo til að mynda til Sikiley og aftur til baka um kvöldið“, segir Freudmann.
KLM Cityhopper var eina flugfélagið sem flaug um Manston-flugvöllinn í Kent í farþegaflugi
KLM CityHopper var eina flugfélagið sem flaug um flugvöllinn í Kent í farþegaflugi en RiverOak
vonast til að geta laðað flugfélagið hollenska aftur til vallarins þar sem stutt er á milli Kent og Amsterdam og þeir
gætu því bætt við flugi til London án þess að fljúga á Heathrow.
Cargolux flaug fraktflug til Manston-flugvallarins en færði sig yfir á Stansted-flugvöll þegar í ljós kom að loka átti flugvellinum.
Freudmann segir að Manston-flugvöllurinn gæti opnað gríðarleg tækifæri fyrir fraktflug milli Bretlands og Kína
en sökum þess hversu þéttsetnir flugvellirnir eru í nágrenni London á borð við Heathrow-flugvöll þá hafa fraktflugvélar
frá Kína ekki geta bætt við fraktflugi til suðurhluta Englands.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.