flugfréttir
Fyrsti flughermirinn fyrir Pilatus PC-24 tekinn í notkun
Fyrsti FlightSafety flughermirinn fyrir Pilatus PC-24 þotuna
Fyrsti flughermirinn fyrir nýju Pilatus PC-24 þotuna hefur verið tekinn í notkun í Dallas í Texas.
Fyrstu flugmennirnir til að fá þjálfun á þotuna í flughermi gangast nú undir þjálfun í herminum sem framleiddur
er af fyrirtækinu FlightSafety sem kemur með nýrri kynslóð að flughermastjórnbúnaði, VITAL 1100 ásýndarbúnað og annarri tækni sem einkennir FS1000 flughermana.
Pilatus afhenti fyrstu PC-24 þotuna fyrr í þessum mánuði til bandaríska fyrirtækisins PlaneSense en PC-24 er fyrsta þotan sem Pilatus hefur framleitt
en hingað til hefur vinsælasta flugvél framleiðandans verið Pilatus PC-12 sem er eins hreyfils skrúfuflugvél sem hefur selst í yfir 1.400 eintökum.
Pilatus PC-24 hefur verið nefnd Super Versatile Jet vegna getu hennar til þess að lenda
á malarflugvöllum og er hún eina einkaþotan í heimi sem hefur þá eiginleika.
FlightSafety rekur tvær þjálfunarstöðvar í Dallas sem bjóða upp á flugherma fyrir
Pilatus PC-24, Pilatus PC-12, Airbus Helicopters, Bell Helicopters, Bombardier, Embraer, Dassault
og Gulfstream.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.