flugfréttir
Qatar Airways hefur engan áhuga á CSeries-þotunni
Akbar Al Baker, framkvæmdarstjóri Qatar Airways
Qatar Airways segist ekki hafa neinn áhuga á CSeries-þotunni frá Bombardier og komi ekki til greina að panta hana eftir að hún verður formlega færð yfir til Airbus.
Þetta kom fram er Akbar Al Baker, framkvæmdarstjóri Qatar Airways, svaraði spurningum
við móttökuathöfn í dag sem fram fór í Toulouse er félagið tók við fyrstu Airbus A350-1000 þotunni.
Airbus keypti í október í fyrra helmingshlut í CSeries-framleiðslunni hjá Bombardier og verða CS100 og CS300
þoturnar komnar undir hatt Airbus á næstunni.
„Qatar Airways hefur engan áhuga á CSeries eins og er“, sagði Al Baker en tók samt fram að mögulega gæti
komið til greina að félagið myndi panta þessar vélar og leigja áfram til annarra flugfélaga.
Qatar Airways hefur áður spáð í litlum farþegaþotum en félagið lagði á sínum tíma inn pöntun
í Airbus A319neo þotuna, sem er samkeppnisþota CSeries, en breytti þeirri pöntun síðar í stærri Airbus-vélar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.