flugfréttir

Airbus missir síðustu pöntunina í A330-800neo

- Hawaiian Airlines hætti við A330-800neo og pantar Boeing 787-9

21. febrúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 07:01

Fyrsta Airbus A330-800neo þotan sem smíðuð hefur verið

Airbus hefur misst einu pöntunina sem eftir var í Airbus A330-800neo þotuna en Hawaiian Airlines hefur hætt við pöntunina og ákveðið þess í stað að panta sex Dreamliner-þotur frá Boeing af gerðinni Boeing 787-9.

Hawaiian Airlines pantaði sex Airbus A330-800neo þotur þann 22. júlí árið 2014 með samkomulagi sem félagið undirritaði en fyrsta tilraunarþotan ef þessari gerð kom út úr málningarskýli í Toulouse í byrjun þessa mánaðar og munu flugprófanir hefjast á næstunni.

Hawaiian Airlines staðfesti pöntunina í desember sl. og var félagið það eina sem átti von á minni útgáfunni af Airbus A330neo breiðþotunni eftir að TransAsia Airways tilkynnti í nóvember 2016 að félagið myndi hætta flugrekstri en það félag hafði pantað fjórar A330-800neo þotur.

Samkvæmt vefnum Leeham News and Comment gæti verið von á yfirlýsingu frá Airbus þar sem ekkert flugfélag á í dag von á að fá Airbus A330-800neo þotuna sem er arftaki Airbus A330-200 þotunnar sem kom á markaðinn árið 1998.

Tölvugerð mynd af Airbus A330-800 í litum Hawaiian Airlines

Fram kemur að Boeing hafi verið mikið í mun að selja Hawaiian Airlines Boeing 787-9 og sérstaklega þar sem flugfélagið havaíska var ósátt með að vera eini viðskiptavinurinn sem átti von á að fá Airbus A330-800neo.

Airbus hafði áður boðið Hawaiian Airlines að skipta pöntuninni út fyrir Airbus A350-900 en félagið taldi slík kaup vera of dýra fjárfestingu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga