flugfréttir
Plássleysi hamlar vexti Norwegian á London Gatwick
Dreamliner-þota Norwegian á Gatwick-flugvellinum í London
Norwegian sér fram á erfiðleika með áætlanir sínar á Gatwick-flugvellinum í London þar sem skortur er á afgreiðsluplássum.
Norwegian ætlar sér að tvöfalda umsvif sín til og frá Gatwick í sumar samanborið við sumarið 2017
með því að hafa tólf Dreamliner-þotur af gerðinni Boeing 787-9 á flugvellinum sem fljúga
þaðan til fjarlægra áfangastaða.
„Við gætum auðveldlega flogið fjórum sinnum á dag til John F. Kennedy flugvallarins í New York
frá Gatwick ef við gætum fengið fleiri pláss. Eftirspurnin er gríðarleg en vandamálið er þrengsli
á flugvellinum. Það eru ekki mörg pláss til sölu og við höfum náð öllum þeim plássum sem voru
í boði“, segir Bjørn Kjos, framkvæmdarstjóri Norwegian.
Norwegian hefur þegar keypt nokkur lendingarpláss frá flugfélaginu Small Planet Airlines til að auka
umsvif sín á Gatwick en einnig látið af hendi eitt pláss sem var í eigu Monarch Airlines.
Þrátt fyrir þessar takmarkanir þá segir Bjørn að ekki komi til greina að færa hluta af starfseminni yfir á annan flugvöll
í London líkt og Stansted-flugvöll.
Norwegian flýgur í dag 256 flugverðir á viku frá London Gatwick og er félagið í dag 3. stærsta
flugfélagið á flugvellinum á eftir easyJet og British Airways.
Norwegian ætlar sér í sumar að fljúga 64 langflugsleiðir frá Gatwick til tólf áfangastaða
sem eru Austin, Buenos Aires, Boston, Denver, Chicago, Fort Lauderdale, Los Angeles, New York, Oakland, Orlando, Seattle og
Singapore.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.