flugfréttir
Sendu óvart út merki um flugrán í stað merkis um bilaða talstöð
Emraer ERJ190 þota Lufthansa Cityline í flugtaki
Flugmenn á farþegaþotu af gerðinni Embraer ERJ190 frá Lufthansa Cityline sendu óvart út rangt ratsjármerki sem gaf til kynna að flugvélinni hefði verið rænt er samband við vélina rofnaði um stundarsakir.
Þotan var á leið frá Aberdeen í Skotlandi til Franfkurt sl. mánudag og var vélin í aðflugi að flugvellinum
í Frankfurt þegar samband við vélina rofnaði.
Eftir að sambandið rofnaði sendi vélin frá sér merkið 7500 sem notað er ef tekið er yfir flugvél með ólögmætum hætti
á borð við flugrán en skömmu síðar var merkinu breytt í 7600 sem merkir að talstöð sé biluð.
Tvær orrustuþotur voru settar í viðbragðsstöðu en voru hinsvegar ekki ræstar út þar sem samband komst aftur á
við flugvélina.
Vélin lenti á flugvellinum í Frankfurt um 36 mínútum eftir að sambandið rofnaði.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.