flugfréttir

Nýir stjórnendur hjá Icelandair

21. febrúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 19:48

Rekstrarsvið er nýtt svið hjá Icelandair og verður til við samruna flugrekstrartengdrar starfsemi Icelandair annars vegar og IGS hins vegar sem hingað til hefur verið starfrækt sem sjálfstæ

Gerðar hafa verið umtalsverðar skipulagsbreytingar á rekstrarsviði Icelandair og nýir forstöðumenn ráðnir til nýrra starfa.

Rekstrarsvið er nýtt svið hjá Icelandair og verður til við samruna flugrekstrartengdrar starfsemi Icelandair annars vegar og IGS hins vegar sem hingað til hefur verið starfrækt sem sjálfstætt fyrirtæki.

Sviðið varð til um síðustu áramót og er Jens Þórðarson framkvæmdastjóri þess. Með skipulagsbreytingum er stjórnkerfi sviðsins einfaldað til muna, boðleiðir styttar og stjórnendum fækkað.

Þetta mun gera fyrirtækinu kleyft að taka hraðari ákvarðanir, sinna starfsfólki betur og gera fyrirtækið í stakk búið fyrir áframhaldandi vöxt og þróun.

Ásgeir Bjarni Lárusson - Forstöðumaður tæknisviðs

Ásgeir Bjarni Lárusson hóf störf hjá Icelandair 2012 sem verkefnastjóri hjá tækniþjónustu félagsins (ITS). Árið 2015 tók Ásgeir við stöðu forstöðumanns viðhaldstýringar og sinnti því til september 2017.

Frá september 2017 hefur Ásgeir leitt sameiningu á þremur deildum, Viðhaldstýring, Verkfræðideild og Hönnunardeild og mun í nýju skipulagi leiða þennan sameinaða hóp sem forstöðumaður tæknisviðs. Áður en Ásgeir hóf störf hjá Icelandair starfaði hann sem verkfræðingur hjá Bang&Olufsen.

Ásgeir er með MSc gráðu í Engineering Business Management frá Warwick University í Bretlandi og BSc gráðu í Global Management og Manufacturing Engineering frá Háskólanum í Árósum. Ásgeir er í sambúð með Gunnhildi Emilsdóttur og eiga þau saman 2 börn.

Ástþór Ingason - Forstöðumaður flugþjónustu erlendis

Ástþór hóf störf hjá félaginu árið 1978 sem sumarstarfsmaður aðeins 14 ára. Hann starfaði í mörgum deildum á Keflavíkurflugvelli frá 1985 til 1996, þegar hann tók við sem deildarstjóri flugstjónustu.

Tók við starfi stöðvarstjóra í Kaupmannahöfn 1999, varð svæðisstöðvarstjóri fyrir Norðurlöndin til ársins 2003 er hann varð yfirmaður stöðvareksturs Icelandair í Evrópu. Árið 2007 tók hann við sem yfirmaður alls stöðvarekstur félagsins. Giftur Elfu Dröfn Jónsdóttur með fimm börn.



Einar Már Guðmundsson - Forstöðumaður viðhaldssviðs

Einar Már Guðmundsson hóf störf hjá Icelandair árið 2015 sem forstöðumaður innkaupadeildar hjá tækniþjónustu félagsins (ITS). Einar starfaði áður sem innkaupastjóri hjá RioTinto Alcan (ISAL) í 3 ár og þar á undan sem rekstrarstjóri hjá Skeljungi.

Einar mun í nýju skipulagi verða forstöðumaður viðhaldssviðs og innkaupadeildar. Einar er með MBA gráðu frá Copenhagen Business School. Einar er giftur Katrínu Melstað og eiga þau saman tvær dætur.




Guðmundur Ólafsson - Forstöðumaður flugþjónustu Keflavíkurflugvelli

Guðmundur hóf störf hjá Icelandair Ground Services árið 2008 sem starfsmaður farþegaþjónustu. Í september 2015 tók hann við deildarstjórastöðu innan fyrirtækisins en í ágúst 2017 tók hann við starfi forstöðumanns flugafgreiðslu- og fraktsviðs og hefur sinnt því síðan.

Áður starfaði hann á markaðssviði Íslandshótela en keðjan rekur m.a. Grand Hótel, Fosshótel hótelkeðjuna ásamt fleiri hótelum víðs vegar um landið. Guðmundur er með B.Sc. viðskipta- og markaðsfræði með áherslu á ferðamálafræði frá Háskóla Íslands. Guðmundur er búsettur í Hafnarfirði og er tveggja barna faðir.


Klara Íris Vigfúsdóttir - Forstöðumaður flugáhafna

Klara hóf störf hjá Icelandair árið 2017 sem forstöðumaður flugáhafna (Cabin Operations). Klara starfaði áður sem forstöðumaður hjá Ferðaskrifstofu Íslands árin 2015-2017 og þar áður sem framkvæmdastjóri ÍMARK á árunum 2013-2015.

Hún starfaði við flugrekstur sem aðstoðarmaður forstjóra Iceland Express, og síðar sem framkvæmdastjóri Express ferða, á árunum 2011-2013. Klara sem er með B.sc. í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hún er gift Guðmundi Inga Haukssyni og saman eiga þau þrjú börn.


Linda Gunnarsdóttir - Yfirflugstjóri

Linda starfaði hjá Íslandsflugi sem flugmaður frá 1993 og til 1995 þegar hún höf störf hjá Flugleiðum á Fokker-50. Frá 1998 flug hún Boeing-737 þangað til hún fluttist yfir á Boeing-757/767 sem hún flýgur enn í dag.

Hún tók við starfi flugstjóra 2006 og sinnti að auki bóklegri ný- og síþjálfun flugmanna. 2006 útskrifðist Linda með B.sc í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík með áherslu á stjórnun og stefnumótun.

Frá 2011 hefur hún einnig starfað sem þjálfunarflugstjóri og prófdómari. Hún tók við starfi flotasjóra á B-757 og svo stöðu aðstoðaryfirflugstjóra 2015. Linda er í sambúð með Gunnlaugi Rafni Björnssyni og eiga þau þrjú börn.

Sigurjón Sigurjónsson - Forstöðumaður öryggis- og gæðasviðs

Sigurjón hóf störf hjá Icelandair í júní 2009 og tók þá við stöðu gæðastjóra félagsins. Hann starfaði áður hjá Flugmálastjórn og var deildarstjóri lofthæfideildar.

Í starfi sínu hjá flugmálastjórn tók hann þátt í innleiðingu JAR reglna frá upphafi og var fulltrúi Íslands í nefndum JAA og síðar EASA sem var stofnað 2002. Sigurjón fékk vottun sem IOSA úttektamaður 2016 og hefur tekið þátt í IOSA úttektum á erlendum flugfélögum á vegum ACS Aviation Solutions. Hann lauk námi í flugvirkjun frá Spartan School of Aeronautics 1987 og starfaði fyrst sem flugvirki hjá Flugleiðum. Hann á tvær dætur og tvö barnabörn.

Þ. Haukur Reynisson - Flugrekstrarstjóri

Haukur hóf störf hjá Icelandair í innanlandsflugi 1991 á Fokker-27 síðan Fokker-50, Boeing-737 og Boeing-757. Hann varð flugstjóri 1998 á Fokker-50 síðan á Boeing-757/Boeing-767. Hann hefur einnig sinnt starfi þjálfunarflugstjóra og prófdómara frá árinu 2005.

Haukur hefur verið yfirflugstjóri Icelandair frá 2015. Hann stundaði flugnám hjá Vesturflugi, American Flyers og Flugskóla Íslands. Hann er giftur Kristínu Jónasdóttir og þau eiga tvær dætur.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga