flugfréttir
Stobart Group íhugar að kaupa Flybe
ATR flugvél Flybe
Breska fjárfestingarfyrirtækið Stobart Group hefur lýst því yfir að til standi að bjóða í breska flugfélagið Flybe í þeim tilgangi að taka yfir allan rekstur á félaginu.
Stobart Group á nú þegar flugfélagið Stobart Air sem flýgur í dag fyrir Aer Lingus Regional
og Flybe og þá á fyrirtækið einnig London Stansted flugvöllinn og flugvöllinn í Carlisle á Englandi.
Stobart Group segir að verið sé að skoða með hvaða fyrirkomulagi verði tekið yfir rekstur
Flybe og þá hvort að fyrirtækið ætli sér að sjá einnig um stjórn flugfélagsins eða vera
aðeins eigandi á meðan aðrir sjá um reksturinn.
Andvirði Flybe á almennum hlutabréfamarkaði eru um 14 milljarðar króna en hlutabréf í
flugfélaginu hækkuðu um 20% eftir að greint var frá áhuga Stobart Group á Flybe.
Flybe er stærsta einkarekna svæðisflugfélag Bretlands og flýgur ekkert flugfélag eins
margar flugferðir í innanlandsflugi í Bretlandi og þá er félagið einnig það stundvísasta af bresku flugfélögunum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.