flugfréttir
Flugslysið í Nepal: Ruglingur milli flugturns og flugmanna
- Misskilningur um hvort vélin átti að lenda á braut 02 og braut 20
Björgunarlið og nepalski herinn við flak vélarinnar í gær
Talið er að ruglingur milli flugmanna og flugumferðarstjóra sé ein orsök flugslyssins sem átti sér stað í gær er farþegaflugvél af gerðinni Bombarider Dash 8 Q400 brotlenti skömmu fyrir lendingu á flugvellinum í Kathmandu í Nepal.
Í hljóðupptöku af samtali flugumferðarstjóra og flugmanna má heyra ruglingsleg samskipti og
misskilning varðandi lendingarheimild og þá braut sem var í notkun.
Flugvöllurinn í Kathmandu hefur eina flugbraut sem hefur stefnuna 02/20 en upphaflega fékk flugvélin
heimild til að lenda á braut 02 með veðurupplýsingar um vindátt 220° með vindstyrk upp á 7 hnúta en
slíkt bauð upp á lendingu í meðvindi með hliðarvindsstuðul upp á sex hnúta.
Flugumferðarstjóri tilkynnir flugmönnunum að þeir hafi heimild til að lenda á braut 02 en spyr hversvegna
þeir séu að stefna í átt að hinum brautarendanum, braut 20.
Flugvélin var smíðuð árið 2001
Á endanum ákveður flugumferðarstjóri að gefa þeim heimild á braut 20 fyrst þeir eru komnir í það aðflug
en skömmu síðar kemur annar flugumferðarstjóri og gefur heimild fyrir sjónaðflugi, hægri undan vindi fyrir
braut 02.
Aftur er ruglast á flugbrautum og þeim gert að koma inn á braut 20 og þeir beðnir að staðfesta umferð sem
er á lokastefnu að braut 02 en við það kemur upp misskilningur þar sem flugmennirnir segja „Copied: runway 02“.
Flugumferðarstjórinn biður þá um að staðfesta að þeir séu að fara að lenda á braut 20 en skömmu síðar
kemur hinn flugumferðarstjórinn og biður þá um að lenda ekki á braut 20.
Flugturninn á flugvellinum í Kathmandu
Nokkru síðar eru þeir beðnir um að lenda sem fyrst og annað hvort á braut 02 eða braut 20 og staðfesta flugmennirnir
lendingarheimildina og velja braut 20. Því næst biður flugumferðarstjóri þá um að staðfesta að þeir komi auga á brautina
en flugmennirnir svara því neitandi.
Flugumferðarstjórinn biður þá um að beygja til hægri og staðfesta hvort þeir sjái flugbrautina en flugmaðurinn
svarar með því að biðja um lendingarheimild sem flugumferðarstjórinn gefur honum.
Flugmaðurinn les hana til baka en nefnir þá braut 02 og ákveður flugumferðarstjórinn að gefa honum heimild
fyrir lendingu á braut 02.
Seinustu orðin frá flugmönnunum voru: „Sir, are we cleared to land?“ - Flugumferðarstjórinn
svaraði: „I say
again, turn…“ og því næst heyrast öskur í flugturninum.
Vélin brotlenti á litlum fótboltavelli í 253 metra fjarlægð austan við flugbrautina klukkan 08:35 að staðartíma
og varð vélin alelda.
Björgunarmönnum tókst að bjarga 39 manns úr flakinu aðeins 22 lifðu slysið af
Öll flugumferð um völlinn var stöðvuð og má heyra í upptöku hvar flugumferðarstjórinn biður aðrar flugvélar
að fara í biðflug.
49 létust í slysinu
Um borð í vélinni voru 67 farþegar og fjögurra manna áhöfn en 49 manns létu lífið á meðan 22 lifðu
slysið af og eru særðir en alls voru 31 bjargað á lífi en átt voru látnir þegar upp á sjúkrahús var komið.
Einn sjónarvottur að flugslysinu sagðist hafa séð flugvélina í beygju til vinstri yfir flugvellinum þar
sem hún fór rétt yfir tvær flugvélar sem voru á jörðu niðri og sneiddi framhjá flugturninum áður en hún
steyptist til jarðar með miklum reyk í kjölfarið.
Flugvöllurinn í Kathmandu staðfestir þau orð og segir að vélin hafi skollið til jarðar nálægt kyrrstæðri flugvél
og farið út af svæðinu og farið því næst niður á smá hæð og staðnæmst á fótboltavellinum.
METAR á flugvellinum er slysið átti sér stað
VNKT 120820Z 28008KT 240V320 6000 TS FEW015 FEW025CB SCT030 22/11 Q1015 NOSIG CB TO SE S AND SW=
Vélin var áður í flugflota SAS
Flugvélin sem fórst bar skráninguna S2-AGU. Vélin var smíðuð árið 2001 og var því 17 ára gömul
en hún hafði áður verið í flugflota Scandinavian Airlines (SAS) en eftir það var hún í rekstri
hjá Royal Jordanian og Augsburg Airways í Þýskalandi áður en hún fór til
US-Bangla Airlines árið 2014.
S2-AGU á flugvellinum í Dhaka í júlí árið 2014
Vélin lenti í atviki fyrir þremur árum síðan er hún fór með hægra hjólastelið út af flugbraut
er vélin var að snúa við á brautinni eftir lendingu á Saidpur-flugvellinum í Bangladesh.
US-Bangla Airlines hafði fjórar Bombarider Dash 8 Q400 vélar í flotanum en félagið hefur einnig
fjórar Boeing 737-800 þotur.
Flugfélagið, sem var stofnað árið 2014, er í einkaeigu og hefur höfuðstöðvar í Dakha, höfuðborg
Bangladesh.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.