flugfréttir

Prófanir með Cessna SkyCourier í vindgöngum er lokið

- Stefna á fyrsta flugið á næsta ári

13. mars 2018

|

Frétt skrifuð kl. 16:04

Líkan af SkyCourier flugvélinni í vindgöngum

Textron Aviation hefur lokið tilraunum með líkan af nýju Cessna 408 SkyCourier flugvélinni í vindgöngum.

Textron kynnti SkyCourier flugvélina í nóvember í fyrra ásamt pöntun frá FedEx sem ætlar að taka fimmtíu útgáfur af þessari tveggja hreyfla flugvél.

Cessna SkyCourier, sem svipar til Twin Otter flugvélarinnar, verður bæði framleidd sem fraktflugvél og farþegaflugvél en vélin mun geta tekið 19 farþega á meðan fraktútgáfan getur flogið með um 2,7 tonn af frakt. 

Í vindgöngum var líkt eftir eiginleikum vélarinnar er kemur að loftflæði og var rafmagnsmótorum komið fyrir á líkaninu til að líkja eftir PT6-65 mótornum frá Pratt & Whitney sem kemur með McCauley skrúfublöðum.

Upplýsingarnar úr prófunum í vindgöngum verða notaðar til að aðstoða verkfræðinga við hönnun á þeim íhlutum sem SkyCoutier flugvélin mun samanstanda af áður en þeir verða sendir í fjöldaframleiðslu.

Cessna SkyCourier í litum FedEx

Stefnt er á að flugprófanir hefjist á næsta ári fyrir afhendingar sem hefjast árið 2020 en FedEx fær þá fyrsta eintakið af vélinni.

„SkyCourier vélin hefur vakið „gríðarlega athygli“ frá flugrekstaraðilum sem hafa tveggja hreyfla flugvélar í flota sínum sem eru sambærilegar og Beech 1900“, segir í yfirlýsingu frá Textron Aviation.

Cessna SkyCourier, sem verður 16 metrar á lengd, getur flogið á 200 hnúta hraða og hefur flugdrægi upp á allt að 1.667 kílómetra. 







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga